1.12.2009 | 13:34
Yfirlýsing Heimavarnarliðsins
Endilega dreyfið þessu eins víða og þið hafið kost á.
Yfirlýsing Heimavarnarliðsins
- Heimavarnarliðið ætlar að verja heimili fólks fyrir útburði vegna óréttmætra skuldakrafna, með því að hindra aðgang lögreglu ef þarf.
- Heimavarnarliðið gengur friðsamlega fram í aðgerðum sínum en áskilur sér rétt til að verja hendur sínar.
- Liðsmenn í Heimavarnarliðinu geta þeir orðið sem eru lögráða, agaðir og styðja markmið þess.
- Þeir sem vilja fá aðstoð Heimavarnarliðsins geta haft sambandi í síma 841-0551 eða netfangið heimavarnarlidid@gmail.com.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Héðinn.
Gott og þarft framtak hjá þér - ykkur í Heimavarnarliðinu ! - Frábært - !
Baráttukveðja.
Sameinuð stöndum vér.
Benedikta E, 1.12.2009 kl. 14:20
Heill og sæll; Héðinn, og þið önnur - hér á síðu hans !
Tók mér; það Bessaleyfi, að vekja athygli, á þörfu framtaki þínu, á síðu minni, í gærkveldi. Veit; að það mætti koma ykkur, til nokkurs liðs.
Það er; þakkarvert, að þið, sem standið framarlega, í baráttunni við niðurrifs öflin, skuluð sýna þetta þarfa framtak.
Með beztu kveðjum; sem jafnan /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.12.2009 kl. 14:57
Þegar ráðist er að heimilum samborgara okkar með jafn siðlausum og stórtækum hætti og gert hefur verið á Íslandi verður það siðlaust að sitja hjá. Við verjumst saman eða föllum eitt af öðru.
"First they came for the Communists but I was not a Communist so I did not speak out. Then they came for the Socialists and the Trade Unionists but I was not one of them, so I did not speak out. Then they came for the Jews but I was not Jewish so I did not speak out. And when they came for me, there was no one left to speak out for me." - Martin Niemöller
Héðinn Björnsson, 1.12.2009 kl. 16:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.