12.5.2009 | 13:51
Bull og vitleysa, jú eint sín noþing ét!
Varasjóðir fólks eru að renna út og því eru fjöldgjaldþrot framundan sem fólk ekki telur sig bera ábyrgð á. Það er því mun líklegra að það muni bregðast harkalega við þegar farið verður í að bera það út. Útburðarbannið rennur út í lok október og síðan líða 40 dagar þangað til hægt er að bera fólk út sem þýðir að það verða að öllu óbreyttu þúsundir heimila sem verða borin út í lok desember. Slíkt verður ekki tekið friðsamlega.
Þegar að fara á að skera niður 30% af ríkisútgjöldum á komandi kjörtímabili verður möguleiki samfélagsins á að bregðast við mun minni en hann er í dag og afleidd störf af ríkisumsvifum mun draga saman hagkerfið í áður óþekkta fátækt.
Atvinnulausir fara í sífellt auknu mæli niður á strípaðar bætur með tilheyrandi fátækt og útburði.
Á Íslandi eru 85 þúsund skráð vopn og væntanlega annað eins óskráð.
Auðvitað er mögulegt að það versta sé afstaðið en það er mun líklegra að það versta sé enn ókomið og þar sem staðan fer síversnandi er líklegt um langt skeið verði sérhver dagur sá versti sem þjóðin hefur lifað í efnahagslegu tilliti um áratugaskeið.
This is not the end. This is not even the beginning of the end, but it may be the end of the beginning.
![]() |
Það versta mögulega afstaðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2009 | 18:07
Ætlar Ísland undir vinstristjórn að styðja hernað?
![]() |
Engin ábyrgð vegna Kjúklingastrætis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2009 | 11:59
Semjum um langtímaskipan stjórnsýslunnar
![]() |
Boða róttæka uppstokkun ráðuneyta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.5.2009 | 14:08
Látum ekki AGS nota okkar vinstristjórn sem rukkara fyrir sig
![]() |
Heimslögregla kapítalismans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.5.2009 | 09:58
Húsnæðislánamál eru friðarmál
![]() |
Málefnahópur VG vill lækka höfuðstól lána |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.5.2009 | 15:19
Stóra spurningin: Hver er nettó vaxtabyrði þjóðarbúsins?
Hætt er við að eignir okkar erlendis ávaxtist ekki jafn vel og lánin sem við þurfum að greiða af og því held ég að varlega áætlað sé að við þurfum nettó að greiða af sem svarar 2000 milljörðum vexti og afborganir. Séu vextir 6,7% eins og talað hefur verið um í óstaðfestum fréttum gera það um 135 milljarða í vexti. Miðað við fasta greiðslu upp á 175 milljarða myndi það taka okkur 23 ár að klára að borga en slíkar greiðslur þyrftu að takast af útflutningi okkar sem er um 400 milljarðar. Til að það gangi upp er nokkuð ljóst að við þurfum að spara innflutning verulega og auka útflutning því innflutingur okkar janúar til mars 2009 var um 90 milljarðar sem samsvarar um 360 milljörðum á ársbasis. Viðskiftahalli okkar væri þá um 135 milljarðar sem þyrfti að brúa með því að minnka neyslu, auka innlenda framleiðslu til heimanotkunar sem og til útflutnings.
Þetta eru grófar áætlanir og viðskiftahallinn minnkar um 50 milljarða ef vextirnir eru 3% í stað 6,7% en mér sýnist að stefnt sé að því að draga úr innflutningi sem nemur 100 milljörðum ári hverju og er líklegt plan væntanlega að notaðir verði til þess tollar, gjaldeyrishöft, neysluskattar og fastheldni gagnvart skuldurum. Erum við tilbúin að kingja þessu eða ætlum við að leita annarra lausna?
![]() |
3100 milljarða skuldir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.5.2009 | 12:53
Hvurn andskotinn er verðbólguhraði
Er það breyting á verðbólgu eða er það bara ruglingslegt orð fyrir verðbólgu?
Og ef það er breyting á verðbólgu þá er þetta nú orðið soldið langsótt:
- Verðbólga er breyting á verði
- Verðbólguhraði er þá breyting á verðbólgu
- Þá kemur að því að það hefur dregið úr verðbólguhraða
- og loks hefur verðbólguhraðabreytingin aukist.
![]() |
Umtalsverð vaxtalækkun í júní |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2009 | 23:57
Hver er þetta sem vill viðræður en ekki sækja um aðild!
Hvaða þjóðfélagshópur er þetta eiginlega sem vill ekki sækja um aðild að ESB en vill fara í aðildarviðræður? Er ekki einhver sem getur útskýrt fyrir viðkomandi að það er ekki hægt að fara í aðildarviðræður án þess að sækja um aðild og meðan verið er að því er kannski hægt að segja fólki frá því að það geti ekki sótt um aðild án þess að segjast þar með vilja ganga í ESB.
Mér sýnist þjóðin vera þrískipt nokkuð jafnt þar sem einn hluti er fylgjandi ESB, annar er á móti og sá þriðji hefur ekki skilið ferlið nægjanlega vel til að mynda sér samhangandi skoðun á málinu.
Eða er það kannski ég sem er að misskilja ferlið? Er einhver leið að komast í aðildarviðræður án þess að sækja um aðild og felur slík umsókn kannski alls ekki í sér neina sérstaka viljayfirlýsingu um að þjóðin hafi áhuga á að ganga í ESB?
![]() |
61,2% vilja aðildarviðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2009 | 16:20
Eigum við að nota gjaldeyri í að spara kvennastöf fyrir karlastörf?
Er skynsamlegt að nota miljarðatugi í að byggja nýjan spítala með tilheyrandi gjaldeyrisútlátum til að geta rekið heilbrigðisþjónustuna með færri starfsmönnum? Ég leyfi mér að efast um það.
![]() |
Vill af stað með nýjan spítala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2009 | 09:44
Þið standið ykkur vel!
![]() |
Kvarta til ESA vegna orkuverðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |